hugsandimenn
  • Prenta
  • Stækka/Minnka letur
  • Hafðu samband
  • Veftré
Þú ert hér / Vörur / WebEd

WebEd

WebEd er öflugt vefumsjónarkerfi hannað með það fyrir augum að allir geti uppfært vefsvæðið sitt á auðveldan og fljótan hátt. Hvort sem fyrirtækið er með einfaldan eða yfirgripsmikinn og flókinn vef, þá ræður WebEd við verkið.

Þú getur fullkomlega ritstýrt vef fyrirtækis þíns og breytt innihaldi hans eins og þig lystir, hvar sem er og hvenær sem er. WebEd er miðlægt kerfi sem gengur á Internetinu. Það þýðir að það eina sem þarf er Internetaðgangur og vafri.

Um þrjár útgáfur af WebEd er að velja; WebEd Light, WebEd Pro og WebEd Enterprice. Hægt er að fá allar upplýsingar um kosti þeirra hér til vinstri.

Hægt er að bæta fjölmörgum viðbótareiningum við WebEd til að gera það þeim mun öflugari. WebEd grunnútgáfan inniheldur aðeins nauðsynlega grunnkosti. En á þennan grunn er hægt að bæta við skemmtilegum kostum til að gera vefsíðu fyrirtækisins áhugaverðari og skemmtilegri. Til að skoða eftirfarandi möguleika smellið hér.

Innifalið í WebEd er grunnnámskeið fyrir starfsmann. Þar er farið vandlega yfir kerfið svo auðvelt sé að taka við vefnum og halda honum við á einfaldan og þægilegan máta. Almenn síma- og póstþjónusta hvað varðar spurningar vegna WebEd kerfisins er einnig innifalin. Öll námskeið eru haldin á skrifstofutíma í höfuðstöðvum Hugsandi Manna ehf. í Borgartúni 29, 2. hæð - 105 Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar um WebEd má nálgast hjá ráðgjöfum okkar í síma 517-1400 eða í gegnum netfangið
info (hjá) hugsandimenn.is


Hugsandi Menn    Skógarhlíð 12    105 Reykjavík    S: 517 1400    Fax: 517 1410    Hafa samband    Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn