Hvað er Homebase?
Homebase er öflugt sölu og skjalakerfi fyrir fasteignasala. Kerfið heldur utan um skráningu á öllum gögnum sem tengjast eignum og viðskiptavinum. Hægt er að tengjast beint við Fasteignaskrá Íslands (FMR), þjóðskrá og aðra miðla. Homebase er miðlægt fasteignasölukerfi, því getur þú tengst því hvar sem er, hvenær sem er.
Hverjir nota kerfið?
Homebase er nú þegar komið í notkun hjá hátt í 40 fasteignasölum hér á landi. Meðal þeirra eru t.d. Valhöll, Fasteignamarkaðurinn, Hraunhamar, Fasteignamiðlun, Ásbyrgi, Híbýli fasteignasala, Fasteignasalinn, RE/MAX heimili og skip, Húsin í borginni, Fjárfesting fasteignasala svo eitthvað sé nefnt.
Af hverju að velja Homebase?
Homebase er miðlægt fasteignasölukerfi og því er það aðgengilegt í hvaða tölvu sem er, hvar sem er.
Homebase er afritað daglega og fyllsta öryggis er gætt.
Mánaðarlega koma út uppfærslur í Homebase með ýmsum nýjungum til hagsbóta fyrir fasteignasala.
Homebase hefur fengið mikið lof hjá fasteignasölum fyrir einfalt og gott viðmót.
Lánareiknirinn í Homebase er mjög nákvæmur og er í stöðugri þróun í takt við markaðsaðstæður.
Skjalakerfið í Homebase er mjög öflugt og fylgir öllum nýjustu reglum og stöðlum á Íslandi.
Allar færslur sem eru gerðar í Homebase eru vistaðar og hægt er að sjá skráningarsögu eignar aftur í tímann og jafnvel kalla aftur fram skráningu eins og eignin var fyrir 3 mánuðum síðan.
Myndabankinn tekur tekur inn allar staðlaðar myndir og hægt er að setja margar myndir inn samtímis, einungis þarf að draga myndirnar yfir og þá eru þær komnar inn á eignina.
Í Homebase er hægt að sækja beint frá Fasteignaskrá Íslands skráningu eignar og eigendur koma með ásamt hlutfall þeirra..
Mjög aðgengilegt er að senda alla samninga í Homebase, ásamt yfirlýsingu húsfélags og fleira á hvern sem er.
Öflugt söluyfirlit er í Homebase og hægt er að velja um nokkur sniðmát (útlit) að söluyfirlitum sem henta hverjum og einum fasteignasala.
