Souk fatamarkaður

Souk fatamarkaður

Souk fatmarkaður opnar nýjan vef. Um er að ræða metnaðarfullan vef sem nýtir kostir nýja vefumsjónakerfið okkar WebEd 2.0

Souk.is er ný og glæsilega sérhönnuð síða sem býður upp á fatamarkað á netinu; kaup og sölu á fötum og fylgihlutum. Souk.is er hönnuð fyri ykkur sem elska tísku og að versla.

Souk.is býður upp á þrjá möguleika:

Bazar: Kaup og sölu á eigin fötum og fylgihlutum.
Outlet: Eldri ónotaðar vörur frá hinum ýmsu merkjum sem hægt er að kaupa á hagstæðu verði.
Mín Hönnun: Vörur frá hönnuðum sem hanna og framleiða sjálfir sínar eigin vörur

Markmið okkar er að bjóða þér upp á að vera með eigin verslun heima í stofu með síðu sem er lifandi, einföld og skilvirk sem allir geta notað.

Souk.is er fyrsta síðan á Íslandi sem einblínir eingöngu á fatnað og fylgihluti.

Souk var stofnað 2010 af Helgu Sigurðardóttur, Þóru Stefánsdóttur og Lovísu Stefánsdóttur.

Nafnið “Souk” þýðir “Market Place” á arabísku.

Til baka