Skrifstofur okkar

PHP forritari (PHP5 / MySQL)

Óskum eftir PHP forritara til starfa hjá Hugsandi mönnum í fullt starf (hlutastarf kemur til greina).

Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í PHP forritun og geti unnið í Model-View-Controller umhverfi.

Vinnutími er frá kl. 9:00-17:00 alla virka daga.

Umsóknir ásamt mynd sendist á:
job [at] hugsandimenn.is

Viðmótsforritari óskast (CSS)

Hugsandi Menn óska eftir vefviðmótsforritara í 100% starf.

Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á CSS, XHTML/HTML5, og brennandi áhuga á nýjustu vefþekkingu.

Hér er um að ræða spennandi tækifæri fyrir skapandi einstaklinga með góða þekkingu á forritun fyrir vefinn og næmt auga fyrir útliti og nytsemi vefviðmóts.

Vinnutími er frá kl. 9:00-17:00 alla virka daga.

Umsóknir ásamt mynd sendist á:
job [at] hugsandimenn.is

Starfsmannastefna

Hjá Hugsandi mönnum er lögð áhersla á að skapa þægilegt vinnuumhverfi og veita starfsfólki tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Mikið er lagt upp úr að efla góðan starfsanda, jákvæð viðhorf og að starfsfólk sýni hvoru öðru virðingu í öllum samskiptum.



Ruby on Rails forritari óskast (RoR)

Um er að ræða spennandi verkefni sem hefur verið í þróun í 2 ár og er þegar í notkun hjá tugum fyrirtækja hér á landi

Einnig hvetjum við forritara með þekkingu á Python að senda umsókn til okkar.

Vinnutími er frá kl. 9:00-17:00 alla virka daga.

Umsóknir ásamt mynd sendist á:
job [at] hugsandimenn.is

Verkefnaferlið
  • 01
    Verkefnaáætlun

    Við hlustum á þig og gerum kostnaðaráætlun. Já, þótt við séum sérfræðingar þá kunnum við að hlusta.

  • 02
    Þarfagreining

    Sérfræðingur okkar gerir ítarlega þarfagreiningu og gátlista. „Sérfræðingur“ er lykilorðið í þessum punkti.

  • 03
    Vinnsla

    Unnið eftir ákv. stöðlum og vinnuskýrsla skráð jafnóðum. Hver elskar ekki staðla og vinnuskýrslur?

  • 04
    Prófanir

    Prófunarferlið er mikilvægt. Vont að skjóta upp geimsk- utlunni og heyra: „Houston, we have a problem.“

  • 05
    Verkefnaskil

    Farið yfir vinnuskýrslur og verkefnið í heild ásamt gátlista þarfagreiningar. Ekkert fyndið. Grafalvarlegt.